Íslenzkir þjóðhættir

Sr. Jónas Jónasson frá Hrafnagili


Íslenzkir þjóðhættir eftir séra Jónas Jónasson frá Hrafnagili kom fyrst út árið 1934 og hlaut strax geysigóðar viðtökur. Þegar bókin var endurútgefin árið 1945 var fullyrt á bókarkápu að þar færi „...sú bók íslenzk sem tvímælalaust hefur hlotið bezta dóma“. Bókin hefur verið ófáanleg um nokkurt skeið, sem hefur verið til vansa.

„Hér er grundvallarrit um íslenzka þjóðháttu á liðnum öldum. Hver sá maður innlendur eða útlendur, sem kanna vill slík efni, hlýtur fyrst og fremst að byggja á þessu riti.“ Dr. Þorkell Jóhannesson

Þessi orð Þorkels Jóhannessonar hafa löngu sannað gildi sitt því Íslenzkir þjóðhættir er sannkallað grundvallarrit. Séra Jónas vann afreksverk með skráningu þjóðháttanna samhliða öðrum tímafrekum störfum og verk hans hefur réttilega skipað virðingarsæti í íslenskri bókmenningu. Það er einkar læsilegt og skemmtilegt, lipurlega skrifað og höfðar til alls almennings – á öllum tímum. Jónasi sjálfum auðnaðist ekki að leggja lokahönd á verkið meðan hann lifði og það kom í hlut Einars Ól. Sveinssonar að búa verkið til prentunar og fylgja því úr hlaði með greinargóðum inngangi. Tryggvi Magnússon myndskreytti verkið af sínu kunna listfengi.

Sú útkoma sem nú kemur fyrir almenningssjónir telst 4. útgáfa verksins, en byggir á upprunalegu útgáfunni. Halldóra J. Rafnar, sonarsonardóttir séra Jónasar, fylgir þessari útgáfu úr hlaði með aðfaraorðum.

Kápa: Prentsmiðjan Oddi/Halldór Þorsteinsson
Umbrot og ljósmyndun: Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja
Prentun: Bookwell, Finnlandi.

Bókin er 504 bls., innbundin
ISBN 978-9935-10-032-0
Leiðbeinandi verð: 5.490 kr.
Kynningartilboð til jóla í flestum bókaverslunum: 3.990 kr
.
BÓKAÚTGÁFAN OPNA ehf. / SKIPHOLTI 50 B / 105 REYKJAVÍK / SÍMI 578 9080 / KT. 501207-1010 / opna@opna.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is