13.07.2010
 Fjöllin lokka og laða
Nýverið sendi Opna frá sér glænýja bók, Fjöll á Fróni - gönguleiðir á 103 fjöll eftir Pétur Þorleifsson. Pétur er frumkvöðull í fjallaferðum og miðlar dýrmætri reynslu sinni til þeirra sem hafa uppgötvað ánægjuna af að sigra fjallstinda – hversu háir sem þeir kunna að vera – og einnig til þeirra sem langar til að spreyta sig en hafa ekki lagt í hann enn. Með í för er greinargott kort sem sýnir gönguleiðina og hvaðan lagt er af stað, ýtarleg lýsing á leiðinni, hækkun og áætluð lengd göngunnar. Þegar upp er komið nýtur afburðaþekking Péturs á landinu sín vel þegar hann lýsir útsýninu sem blasir við og öllum helstu kennileitum.
Nánar »  
 19.05.2010
 Helgi Björnsson hlaut viðurkenningu fyrir bestu fræðibók ársins 2009
Félag bókasafns- og upplýsingafræða veitti í gær, 18 maí, viðurkenningu fyrir bestu frumsömdu íslensku fræðibók ársins 2009. Fyrir valinu varð ritið Jöklar á Íslandi eftir Helga Björnsson.
Nánar »  
 27.04.2010
 Til hamingju, Sigrún
Sigrún Helgadóttir hlaut á degi umhverfisins, náttúruverndar-viðurkenningu Sigríðar í Brattholti fyrir störf sín í þágu umhverfismála. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi viðurkenning er afhent.
Nánar »  
 12.02.2010
 Heillandi heimur vatnslitanna
Út er komið hjá Bókaútgáfunni Opnu veglegt rit um vatnslitamálun á Íslandi. Bókin, sem gefin er út í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur, ber heitið Blæbrigði vatnsins – Vatnslitir í íslenskri myndlist 1880-2009.
Nánar »  

1  2  3  4  5  Næsta síða 
BÓKAÚTGÁFAN OPNA ehf. / SKIPHOLTI 50 B / 105 REYKJAVÍK / SÍMI 578 9080 / KT. 501207-1010 / opna@opna.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is