DAÐI – Ódysseifur 
Höfundur: Ragna Sigurðardóttir




mjúkt band með innábrotum
64 bls.
ISBN 978-9935-10-046-7
Leiðbeinandi verð 2.990 kr.



Málverk Daða Guðbjörnssonar (1954) eru litrík, ærslafull og aðgengileg. Það er ekki að undra að þau hafi notið mikillar lýðhylli og séu þekkt meðal almennings. Þó hafa verkin einnig verið umdeild. Persónulegur myndheimur málarans hefur hlotið góðar viðtökur gagnrýnenda og listfræðinga en líka ögrað og vakið upp spurningar. (Ragna Sigurðardóttir)


Í þessari bók og á tengdri sýningu má fina metnaðarfullan myndabálk sem Daði hefur unnið að síðastliðin þrjú ár. Eins og titillinn gefur til kynna fylgja verkin slóð Ódysseifs. Hér hittum við fyrir skáldfák og einhyrninga ásamt Medúsu, Venusi, Parísi og hinni rófingruðu morgungyðju. En þótt táknmyndirnar eigi sér beina tilvísun í kviður Hómers er hér ekki um myndskreytingu að ræða, heldur ákaflega persónulega túlkun á andlegri leit sálarinnar. Sjálfur hefur Daði lýst verkunum sem „... tilraun til að beisla ljósið og þann síkvika mátt sköpunarkraftsins sem birtist og hverfur manni úr greipum jafnhraðan.“ Þau eru eins og hann bætir við „...einskonar Ódysseifskviða málaralistarinnar á 21. öldinni.“

BÓKAÚTGÁFAN OPNA ehf. / SKIPHOLTI 50 B / 105 REYKJAVÍK / SÍMI 578 9080 / KT. 501207-1010 / opna@opna.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is