MANNVIST – sýnisbók íslenskra fornleifa

Höfundur: Birna Lárusdóttir


Innbundin
470 bls.
ISBN: 978-9935-10-045-0
Leiðbeinandi verð: 8.990 Kr.
 


„Íslenskar fornleifar eru yfirleitt ekki rismiklar eða áberandi. Þær eru þvert á móti lágstemmdar í einfaldleika sínum, falla oft vel inn í landslagið og eru hluti af því. Sumar mannvirkjaleifar eru þó mjög greinilegar og sjást langt að, veggir úr torfi og grjóti enn stæðilegir og undir þeim grænir og gróskumiklir hólar, þrungnir áburði eftir aldalöng umsvif fólks og skepnubeit. Aðrar fornleifar getur verið vandasamt að koma auga á og þarf stundum að hafa sig allan við, hvessa augun og halla undir flatt, klifra upp á hól til að fá nýtt sjónarhorn eða jafnvel bíða eftir að kvöldsólin baði landið með geislum sínum og töfri fram skugga og drætti úr fortíðinni …” segir Birna Lárusdóttir í inngangi.

Fornar leifar á Íslandi koma eflaust mörgum á óvart, enda er þær að finna á ólíklegustu stöðum úti um allt land og frá ýmsum aldursskeiðum því ekki eru allar fornleifar svo ýkja gamlar, samkvæmt skilgreiningu laganna er miðað við 100 ár. Áætlað er að fornleifastaðir hér á landi séu að minnsta kosti 130 þúsund talsins. Þótt rannsóknir hafi stóraukist á síðustu árum er enn allt of margt ókannað þar sem fornleifarannsóknir geta veitt glænýja sýn á landslag og sögu.

MANNVIST – Sýnisbók íslenskra fornleifa opnar þennan heim fyrr leikum og lærðum. Birna Lárusdóttir og samverkamenn hennar settu sér það markmið að beina sjónarhorninu frá helstu sögustöðum og valdasetrum að hversdagslegri minjum um daglegt líf almennings. Útkoman er læsilegt, fræðandi og umfram allt lifandi og skemmtilegt yfirlitsrit. Bókin er búin fjöldamörgum ljósmyndum sem styðja rækilega við textann.

Birna Lárusdóttir er fornleifafræðingur og hefur starfað hjá Fornleifastofnun Íslands frá árinu 1999. Hún er aðalhöfundur þessa mikla verks og jafnframt ritstjóri þess. Aðrir höfundar efnis eru Adolf Friðriksson, Árni Hjartarson, Bjarni F. Einarsson, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Guðmundur J. Guðmundsson, Hildur Gestsdóttir, Orri Vésteinsson og Þóra Pétursdóttir.


BÓKAÚTGÁFAN OPNA ehf. / SKIPHOLTI 50 B / 105 REYKJAVÍK / SÍMI 578 9080 / KT. 501207-1010 / opna@opna.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is