Sigrún Helgadóttir á Þingvöllum
 20.02.2009
 Sigrún Helgadóttir tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis
Sigrún Helgadóttir hefur verið tilnefnd til viðurkenningar Hagþenkis fyrir bók sína Jökulsárgljúfur - Dettifoss, Ásbyrgi og allt þar á milli. Í umsögn dómnefndar kemur fram að bókin sé "Lykill að stórbrotnu svæði, þar sem afar vel er fléttað saman sögu, náttúrufræði og bókmenntum." Jökulsárgljúfur er fyrsta bókin í ritröð um friðlýst svæði á Íslandi.
Sigrún Helgadóttir gerþekkir Gljúfrin því hún hefur dvalið þar langdvölum allt frá barnsaldri, meðal annars sem landvörður í þjóðgarðinum. Í bókinni er fjallað um sögu svæðisins og náttúru en aðaláherslan er á lýsingu gönguleiða og fylgir bókinni mjög vandað kort yfir allt svæðið sem og einstakar gönguleiðir.

BÓKAÚTGÁFAN OPNA ehf. / SKIPHOLTI 50 B / 105 REYKJAVÍK / SÍMI 578 9080 / KT. 501207-1010 / opna@opna.is
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is